Fara í efni

Gildistaka: 4. nóvember 2026

Söluskilmálar

Skilmálar þessir gilda um kaup á áskriftum að Virðismatskerfi Reitunar og stökum verðmötum. Kaupandi samþykkir skilmálana við kaup. English version below.

1. Seljandi

Reitun ehf., kt. 600410-0590, Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavík. VSK-númer 104839. Reitun ehf. er skráð í fyrirtækjaskrá Skattsins. Netfang reitun@reitun.is, sími 533 4600.

2. Vara og þjónusta

Reitun selur áskrift að óháðum greiningum á skráðum íslenskum félögum: verðmötum, afkomuspám og greiningarskýrslum. Efnið er aðgengilegt í vefforriti Reitunar. Einnig selur Reitun stök verðmöt á einstökum félögum.

Áskrift er persónuleg og veitir einum notanda aðgang. Óheimilt er að deila aðgangi eða endurdreifa efni. Um notkun í atvinnuskyni, til dæmis fyrir fleiri notendur innan fyrirtækis, skal samið sérstaklega.

Við veruleg brot á þessum skilmálum getur Reitun takmarkað eða lokað aðgangi. Kaupanda er þá tilkynnt um ástæðuna og, þegar við á, gefinn hæfilegur frestur til úrbóta.

Ákvæði um lögbundin réttindi neytenda eiga við þegar kaupandi er einstaklingur sem kaupir utan atvinnustarfsemi sinnar.

3. Verð og greiðslur

Öll verð eru í íslenskum krónum og innihalda 24% virðisaukaskatt. Grunnaðild kostar 11.990 kr. á mánuði eða 119.880 kr. á ári. Greiningaraðild kostar 29.990 kr. á mánuði eða 299.880 kr. á ári. Verð stakra verðmata kemur fram við kaup.

Greitt er með greiðslukorti í gegnum örugga greiðslugátt. Áskrift er greidd fyrirfram fyrir hvert greiðslutímabil, mánuð eða ár. Hún endurnýjast sjálfkrafa í lok hvers tímabils og gjald fyrir næsta tímabil er þá skuldfært á greiðslukort kaupanda. Uppsögn sem berst áður en nýtt greiðslutímabil hefst kemur í veg fyrir þá endurnýjun. Kortaupplýsingar eru ekki vistaðar hjá Reitun.

4. Afhending

Aðgangur að áskrift opnast þegar greiðsla hefur verið staðfest. Stök verðmöt eru afhent rafrænt, með tölvupósti eða í vefforriti Reitunar, innan þess frests sem fram kemur við kaup. Engar efnislegar vörur eru sendar.

5. Uppsögn og endurgreiðslur

Áskrifandi getur sagt áskrift upp hvenær sem er með tölvupósti á reitun@reitun.is. Uppsögn tekur gildi í lok yfirstandandi greiðslutímabils og aðgangur helst til þess tíma.

Við venjulega uppsögn er ekki endurgreitt fyrir ónotaðan hluta yfirstandandi greiðslutímabils. Þetta skerðir ekki lögbundinn rétt neytanda til að falla frá samningi eða úrræði vegna galla, tafa eða annarra vanefnda, þar á meðal rétt til endurgreiðslu þegar skilyrði hennar eru uppfyllt.

6. Réttur til að falla frá samningi

Neytandi hefur samkvæmt lögum nr. 16/2016 um neytendasamninga 14 daga frest til að falla frá samningi frá gerð hans. Við kaup á stafrænu efni sem ekki er afhent á áþreifanlegum miðli fellur sá réttur niður þegar afhending hefst, að uppfylltum lögbundnum skilyrðum: neytandi hefur fyrir fram sérstaklega samþykkt að afhending hefjist áður en fresturinn er liðinn, viðurkennt að hann glati þar með réttinum og fengið staðfestingu á samningnum.

Þegar réttur til að falla frá samningi er fyrir hendi tilkynnir neytandi Reitun um ákvörðun sína með ótvíræðri yfirlýsingu, til dæmis með tölvupósti á reitun@reitun.is, innan frestsins. Reitun endurgreiðir þá innan 14 daga frá því tilkynningin berst, með sama greiðslumáta og notaður var við kaupin.

7. Verðbreytingar og breytingar á skilmálum

Reitun tilkynnir áskrifendum um verðbreytingar og efnislegar breytingar á skilmálum þessum með tölvupósti með minnst 30 daga fyrirvara. Breytingar taka gildi við fyrstu endurnýjun eftir að fyrirvarinn er liðinn og áskrifandi getur sagt upp áður en þær taka gildi.

Breytingar skerða ekki réttindi vegna þegar greidds tímabils. Verulegar breytingar á eðli eða umfangi þjónustunnar verða ekki bindandi fyrir kaupanda án sérstaks samþykkis hans.

8. Eðli efnis og ábyrgð

Efni Reitunar er greining og upplýsingar, ekki fjárfestingarráðgjöf og ekki ráðlegging um kaup eða sölu fjármálagerninga. Greiningar byggja á opinberum upplýsingum og forsendum Reitunar á hverjum tíma og geta breyst án fyrirvara.

Kaupandi tekur sjálfur ákvarðanir um fjárfestingar. Reitun ábyrgist ekki tiltekna ávöxtun eða verðþróun fjármálagerninga. Um ábyrgð Reitunar vegna galla eða annarra vanefnda fer samkvæmt gildandi lögum. Skilmálar þessir takmarka ekki ófrávíkjanleg réttindi neytenda.

Í viðskiptum milli atvinnurekenda takmarkast ábyrgð Reitunar við þá fjárhæð sem kaupandi hefur greitt fyrir þjónustuna síðustu 12 mánuði, nema tjón stafi af ásetningi eða stórfelldu gáleysi Reitunar.

9. Persónuupplýsingar

Reitun vinnur með nafn og netfang kaupanda og upplýsingar um áskrift í þeim tilgangi að veita þjónustuna, innheimta og eiga samskipti við kaupanda, í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

Við vinnsluna notar Reitun þjónustuaðila vegna hýsingar, auðkenningar, samskipta og greiðslna. Upplýsingar eru ekki seldar eða afhentar öðrum nema þar sem lög krefjast. Kaupandi getur óskað eftir upplýsingum um vinnsluna og nýtt réttindi sín með því að hafa samband á reitun@reitun.is.

10. Lög, kvartanir og varnarþing

Um samninginn gilda íslensk lög, án þess að það skerði ófrávíkjanlega neytendavernd sem annars ætti við. Kvörtunum má beina til Reitunar á reitun@reitun.is. Neytandi getur einnig leitað til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa.

Um varnarþing í neytendamálum fer samkvæmt lögum. Í viðskiptum milli atvinnurekenda er varnarþing Héraðsdómur Reykjavíkur.


Effective 4 November 2026

Terms of sale

These terms apply to subscriptions to Reitun's valuation platform and to one-off valuation reports. The buyer accepts them at purchase. The Icelandic version prevails in case of discrepancy.

1. Seller

Reitun ehf., ID no. 600410-0590, Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavík, Iceland. VAT no. 104839. Registered in the Icelandic company register (Skatturinn). Email reitun@reitun.is, phone +354 533 4600.

2. Products

Subscriptions to independent research on Icelandic listed companies (valuations, earnings forecasts and analyst reports), available in Reitun's web application, and one-off valuation reports. A subscription is personal to one user. Sharing access or redistributing content is not allowed. Business use, for example for several users within a company, requires a separate agreement.

For material breaches of these terms Reitun may restrict or close access. The buyer is told why and, where appropriate, given reasonable time to remedy the breach. Provisions on statutory consumer rights apply when the buyer is an individual acting outside their trade or business.

3. Prices and payment

Prices are in ISK including 24% VAT. Grunnaðild costs 11.990 kr. per month or 119.880 kr. per year. Greiningaraðild costs 29.990 kr. per month or 299.880 kr. per year. One-off valuation prices are shown at purchase.

Payment is by card through a secure payment gateway, in advance for each billing period (a month or a year). Subscriptions renew automatically at the end of each period and the next period is charged to the buyer's card. A cancellation received before a new period starts prevents that renewal. Reitun does not store card details.

4. Delivery

Subscription access opens once payment is confirmed. One-off reports are delivered electronically, by email or in Reitun's web application, within the time stated at purchase. No physical goods are shipped.

5. Cancellation and refunds

Cancel at any time by emailing reitun@reitun.is. Cancellation takes effect at the end of the current billing period, and access continues until then.

Ordinary cancellation does not entitle the subscriber to a refund for the unused part of the current billing period. This does not affect statutory withdrawal rights or remedies for defects, delay or other breach, including refunds where legally due.

6. Right of withdrawal

Under Icelandic Act No. 16/2016 consumers have 14 days from conclusion of the contract to withdraw. For digital content not supplied on a tangible medium, the right is lost once supply begins, provided the statutory conditions are met: the consumer has expressly consented in advance to supply beginning before the period ends, acknowledged losing the right, and received confirmation of the contract.

Where the right of withdrawal applies, the consumer informs Reitun by an unequivocal statement, for example by email to reitun@reitun.is, within the period. Reitun then refunds within 14 days of receiving the notice, using the original payment method.

7. Changes

Price changes and material changes to these terms are notified by email at least 30 days in advance. They take effect at the first renewal after the notice period has expired, and the subscriber may cancel before they apply. Changes do not affect periods already paid for, and material changes to the nature or scope of the service do not bind the buyer without their specific consent.

8. Nature of content and liability

Reitun's content is research and information, not investment advice or a recommendation to buy or sell financial instruments. It is based on public information and Reitun's assumptions at the time and may change without notice.

Buyers make their own investment decisions. Reitun does not guarantee investment returns or movements in financial-instrument prices. Reitun's liability for defects or other breach is governed by applicable law, and these terms do not limit mandatory consumer rights. Between businesses, Reitun's liability is limited to the amount the buyer paid for the service in the preceding 12 months, except for intent or gross negligence.

9. Personal data

Reitun processes the buyer's name, email and subscription details to provide the service, take payment and communicate, in line with Icelandic Act No. 90/2018. Reitun uses service providers for hosting, authentication, communication and payments. Data is not sold or otherwise disclosed except where required by law. Contact reitun@reitun.is for information about the processing or to exercise your rights.

10. Governing law, complaints and venue

Icelandic law governs the contract without depriving consumers of otherwise applicable mandatory protection. Complaints can be sent to reitun@reitun.is, and consumers may also refer them to Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa (the Icelandic consumer complaints board). Jurisdiction over consumer disputes is determined by applicable law. For business-to-business disputes the venue is Héraðsdómur Reykjavíkur.